14.05.2012 08:02
Frá útreiðanefnd
Frá útreiðanefnd
Laugardaginn 19. Maí er fyrirhuguð útreið út að Horni farið verður frá Lónvegamótum
kl 13 og riðið út að Horni og austur á Hafnartanga og til baka að hesthúsunum
hjá Ómari þar geta menn fengið hey og geymslu fyrir hestana fram á sunnudag.
Ef einhver getur tekið að sér að vera með einhverjar veitingar og selja í Vikingkaffi, þá væri það mjög vel þegið. Hafið sambandi við einhvern úr útreiðarnefnd .
Á sunnudaginn kl 13 verður svo riðið vestur að Hornafjarðaós og svo til
baka og heim, fólk getur komið með hesta á kerru út að Horni á
laugardag ef það vill og verið með þar útfrá og vera þá komið kl 16.
Sjáumst sem flest :)
Útreiðanefnd.
Skrifað af Admin
05.05.2012 13:12
Firmakeppni 2012
Firmakeppni Hornfirðings 2012 verður haldin sunnudaginn 6. maí. Keppni hefst kl. 14:00 en skráning hefst 13:30 í Stekkhól.
Keppt verður í tvígangi og þrígangi og barna, unglinga og ungmenna ef þátttaka í þeim flokkum fæst. Hægt er að skoða dagskrá Hornfirðings fyrir árið undir flipanum dagskrá.
Mótanefnd
Skrifað af Admin
04.05.2012 14:30
Firmakeppni Sunnudag
Firmakeppni Hornfirðings verður haldin sunnudaginn 6 maí og hefst kl 14:00.
Nánari upplýsingar seinna í dag
Því miður frestast æfingamót og kennsla sem átti að vera 5. maí vegna lítillar þátttöku
Skrifað af Admin
27.04.2012 18:07
Æfingamót og reiðkennari
Stefnt er að því að hafa æfingamót næstu helgi, eða þann 5-6. maí. Til okkar kemur Sveinn Jónsson sem mun aðstoða fólk og vera með einkatíma- og kennslu ásamt því að dæma á móti hjá okkur. Reiknað er með því að hálftími hjá kennara kosti 3000 krónur og ráði menn hvort þeir taki lengri tíma en það. Við myndum endilega vilja vita hver þátttakan er svo að menn er beðnir um að láta vita hér í commentakerfinu eða á facebook. Frekari upplýsingar síðar.
Mótanefnd.
Skrifað af Admin
27.04.2012 11:42
Frá útreiðanefnd !
Farið verður í Hrísey með leiðsögn kl 15:00 laugardaginn 28.apríl, frá Stekkhól
ef veður leyfir. Annars verður farið sunnudaginn 29.apríl kl 16:00
sjáumst
ef veður leyfir. Annars verður farið sunnudaginn 29.apríl kl 16:00
sjáumst
Skrifað af Admin
17.04.2012 23:13
Vetrarleikar III
Vetrarleikar III verða haldnir á sumardaginn fyrsta. Skráning hefst kl. 15 og verður keppt í eftirfarandi flokkum:
- Tvígangi
- Þrígangi
- Unghrossum
- Smala
Eftir mótið verða síðan veitt verðlaun fyrir mótaröð vetrarleika og eins sagt er í blogginu hér að neðan mun samningur vegna reiðhallar verða kynntur og undirritaður þar sem keppendur og aðrir geta gætt sér á kjötsúpu á meðan. Kynningin hefst kl 17 fyrir þá sem ekki komast fyrr.
Mótanefnd.
Skrifað af Admin
17.04.2012 11:38
Kynningarfundur og undirskrift samnings vegnareiðhallar
Kynningarfundur vegna samnings sveitarfélagsins Hornafjarðar og hestamannafélagsins Hornfirðings vegna reiðhallar verður haldinn á sumardaginn fyrsta 19.apríl í Stekkhól kl 17:00.
Allir velkomnir
Stjórn Hornfirðings
Allir velkomnir
Stjórn Hornfirðings
Skrifað af Admin
- 1
Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 79
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 155642
Samtals gestir: 42409
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:06:51
